Trallalala

Trallalala

28.11.2007 10:24:16 / Lucifer

Sigur Rós

Mikið óskaplega er andlega upplífgandi að hlusta á þessa hljómsveit, hún nær einhvern veginn að hrifsa mann út úr raunveruleikanum og gera mann ástfanginn af lífinu.
Áfram Sigur Rós og TAKK fyrir að vera til.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 16:52:00 / Lucifer

Meira nöldur og dizz hahaha

Lenti í ráni um hábjartan dag í hádeginu:evil:.  Var á hraðferð og ætlaði að skjótast í lúgusjoppu að fá mér hamborgara. Mistök EITT, skjótast í lúgusjoppu, ekki velja Litlu Kaffistofuna við Tryggvabraut afgreiðslan er álíka slow og auglýsing frá dressmann.  En well ég pantaði hamma með osti -kál, bara svona standard fakking burger, stelpugreyið sem var að afgreiða bauð mér hvort ég vildi kaupa tilboð með frönskum og kók.  Þar sem að mér þykir kók ekki gott og ætlaði ekki að vera troða út á mér belginn með djúpsteikingarfeiti úr frönskum kartöflum, þá vildi ég hvorugt með þessu og bað um Sítrónukristal.
En viti menn þessir andskotans ræningjar þeir rukkuðu mig um 720 kr ISK fyrir helvítis börgerinn, þar af kr 120 fyrir ost og kr 100 fyrir HAMBORGARASÓSU, hvað er að þessu andsk pakki, að rukka um 100 krónur fyrir að fá sósu á hamman, á það ekki að verja standard stöff, sök sér að borga aðeins fyrir ostinn en ég meina kommonn.  Að auki við þetta þurfti ég að borga 210 kr fyrir hálfan líter af vatni með kolsýru.  Ég veit ekki nákvæmlega hvað það kostar að kaupa tilboð ostborgara með frönskum og kókógeði eitthvað nálægt 680+/-50.
Skv þessu er semsagt mun ódýrara að troða sig út af djúpsteiktu frönskuógeði og Coca Fakking Cola (sem er btw næst mest ávanabindandi efni í heimi á eftir nicotíni ) en að reyna fá sér "heilsuhamborgara"
Og frekar skal ég dauður liggja en að versla aftur við sjoppu sem að rukkar mig um 100 fakking krónur fyrir að setja hamborgarasósu á hammann minn. :^):^):^):^)


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 10:42:34 / Lucifer

HARÐSPERRUR frá helvíti........

Uppskera dagsins í gær og fyrra harðsperrur, kræst, þarf að láta bera mig upp og niður stiga.  Eða nota lyftuna ( takk Guð fyrir að hafa látið mannkynið finna upp lyftur )
En sem sem betur fer var líka mikið af myndum sem komu út úr þessu eitthvað af þeim ætti að detta inn á http://utivist.anza.is á næstu dögum.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 12:02:29 / Lucifer

Gönguhrólfur....... púff

Fór út að skokka í gær, hef nú ekki hreyft mig mikið síðustu 2 árin, svona ein og ein minniháttar ganga.  En nú að drattast í form á einni viku, er með harðsperrur frá helvíti í dag, en samt á að láta vaða á súðum og skella sér á Súlurnar í kvöld :haha:, ætti ekki að vera vandmál á uppleiðinni þar sem að sperrurnar trufla ekki mikið í því en verra með niðurleið, alveg andskoti að ganga niður tröppur t.d.  Ég er búinn að reyna að komast að samkomulagi við félaga minn um að leysa bakpokann hans af á niðurleiðinni en ég get nú ekki sagt að honum hafi litist eins vel á hugmyndina og mér 8| skil bara ekkert í þessu.
Svo er bara meira skokk á morgun og aftur Súlur á fimmtudagskvöldið, held að ég verði að fórna tónleikum með Hvanndalnum þar sem að þetta hreyfingaræði í þessari viku er til að koma sér í form fyrir Glerárdalshringinn á laugardaginn.  Nú ætla ég loksins að láta verða af því að drattast þennan hring, hef samt á tilfynningunni að þetta verði meira svona 29x24, það er 24 tindar á 29 klst í stað 24x24, en það kemur bara í ljós. 50 friggen kílómetrar og 4000m hækkun samanlögð, svona ca. eins og að ganga á Hvannadalshnjúk, og niður aftur og svo strax upp aftur :P gaman að því.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 12:59:50 / Lucifer

kræst........

Hvað er með þessa andsk.... tölvupóstspamar, hvaða njósnara eru þeir eiginlega með, hvernig vita þeir að ég er feitur klámfíkill með alltof lítið typpi og gríðarlegan áhuga á online veðmálum.  :^):^):^)

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 22:12:13 / Lucifer

Loksins loksins loksins

Var að horfa á mynd í sjónvarpinu http://www.channel4.com/science/microsites/G/great_global_warming_swindle/index.html bara snilld, heyrast aðeins aðrar raddir en þær sem að fullyrða að hnattræn hlýnun sé af mannavöldum.  Það veit hvert einasta barn sem lesið hefur mannkynssögu að það var hlýrra hér áður fyrr, t.d. þegar Golli og Hjölli settust hér að (ekki að þeir hefðu gert það ef kuldinn hefði verið eins og hann var á 14. öld eða á seinni hluta 20. aldar).   Annað sem að er óyggjandi sönnun fyrir því að það hafi verið mikið hlýrra hér áður fyrr er að það hafa fundist á Bretlandseyjum steingerðar leifar af hitabeltisplöntum. 
Ég persónulega er búinn að halda þessu fram í mörg ár og þess vegna þykir mér gott að sjá að mjög virtir vísindamenn þora að koma fram í þessum þætti og benda á engar sannanir séu fyrir því að hnattræn hlýnun sé koltvísýringslosun mannsins að kenna.  M.a.s. kom fram í þessum þætti að hlutir sem vísindamenn sögðu og ekki féllu að skoðunum IPCC ( Lofstlagsráð Sameinuðu Þjóðanna) voru klipptir út úr skýrslum sem búið er að vera birta síðustu misserin.  Sérstaklega voru tilteknar 15 málsgreinar sem að þeir vildu láta hafa eftir sér og fólu í sér að engar sannanir væru fyrir hendi um að hnattræn hlýnun væri manninum að kenna heldur styrk sólarinnar. 
Önnur kenning sem ég rakst á um daginn þar sem danskur vísindamaður sýndi fram á að hlýnun og kólnun jarðarinnar væri í beinu samhengi við staðsetningu sólkerfisins okkar í vetrarbrautinni hér má lesa meira um það http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/128319/
Nú ber ekki svo að skilja að sé að segja að við eigum að menga jörðina þangað til við getum ekki andað að okkur hreinu lofti lengur, bara kannski allt í lagi að halda sér á límingunum þó að það sé aðeins að hlýna, heimsendir er ekki í nánd, allaveganna ef svo er þá hefur hann komið oft áður.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 23:29:01 / Lucifer

Sloppinn......

....allaveganna við hasshundana, lendi kannski aftur í rifrildi á heimleiðinni útaf svona 2,5 cl sýnishornavínflösku eins og síðast þegar ég fór í gegnum Keflavík.
Annars er það málið að nú erum við hjónakornin búinn að liggja yfir því síðustu daga að koma fleiri myndum inn á vefinn okkar http://www.ranargata.is ca. 1600 kvikindi, ( ég vona að ISPinn minn sé ekki að skoða þetta ).  Í einhverri einskærri leti þá nenntum við ekki að setja texta inn við myndirnar, en það er hægt að komast inn á myndasíðurnar með því að ýta á ákveðna glugga á forsíðunni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 12:55:42 / Lucifer

Damn nú er ég kvíðinn..............

Er að fara til útlanda eftir 2,5 vikur, sem væri ekkert nema skemmtilegt ef að ég hefði ekki keypt soldið undarlegann klósettpappír um daginn.  Þannig er nefnilega mál með vexti að það er einhver svona einkennilegur hassolíuilmur af pappírnum:S., og í ljósi þess að maður notar pappírinn til að þurrka á sér óæðri endann í kjölfar úrgangslosunar þá getur þetta skapað ákveðinn vandamál. :|  Ég er farinn að fá martraðir á næturnar um það að fíkniefnahundurinn stökkvi til og þefi af rassborunni á mér þegar ég fer í gegnum flugstöðinna, og það kann vissulega ekki góðri lukku að stýra.  Til að reyna leysa málið þá er ég farinn að bjóða gestum og gangandi að nota salernið mitt til að reyna klára pappírinn í tíma, þannig að kæru vinir verið velkomnir í heimsókn í kaffi og klósettferð.


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 11:15:11 / Lucifer

Jæja

Nú er útséð með það að 48,3% kosningabærra manna í landinu styðja....
1. Stríð
2. Fátækt (aldrei hafa jafnmargar fjölskyldur þurft að leita aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd og síðustu ár)
3. Ósanngjarnt skattakerfi
4. Lokun á Evru sem hugsanlegan gjaldmiðil á Íslandi.
5. Einkavæðingu á heilbrigðisgeiranum ( sem leiðir af sér að margir hætta að geta sótt viðeigandi þjónustu þar eins og hefur verið tannlækningar undanfarinn ár )
En svona er þetta.  Hræðsluáróður hægrimanna um óðaverðbólgu vinstri stjórnar fyrir meira en 27 árum síðan virðist hafa skilað sér í eyru kjósenda.  Það er fráleitt að halda því fram að verðbólga og gengisfall krónunnar versni eitthvað ef að vinstri flokkar komast í stjórn.  Sennilega verðum við samt að bíða í 4 ár í viðbót með að fá breytingar.
En svona næstum því af öðru hvað er með þessa kosningalöggjöf í landinu8|, hvernig má það vera að atkvæði af ströndum hafi áhrif á fjölda þingmanna ákveðins flokks í Reykjavík.  Held að þetta uppbótarþingmannarugl sé alveg út í hróa.  Það á að gera landið að einu kjördæmi þannig að plein atkvæðafjöldi dugi.  Það er líka soldið ósanngjarnt gagnvart Íslandshreifingunni og öðrum nýjum stjórnmálaöflum að það þurfi að ná 5% fylgi til tekið sé mark á þeim:!:  48,3% kusu núv. stjórnarflokka 48,4 kusu núv. stjórnarandstöðuflokka, af hverju heldur þá stjórnin velli með einum manni?


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 22:14:16 / Lucifer

Eurovision ( er nebbilega hættur að blogga um neyslusamdrátt þar sem við erum löngu dottin á kaf aftur )

Ég verð nú bara aðeins að fá að tjá mig um þetta Eurovision dæmi.  Í fyrsta lagi sá ekki Eika töffara í beinni, en heyrði í honum í útvarpinu (massaflottur performance) þar sem ég var á keyrslu meðan keppnin fór fram.  En víhú þökk sé internetinu þá fann ég vefsðíðu þar sem að keppnin var send út stöðugt og því gat ég horft á Eika og hina flytjendurna þegar ég var kominn heim.
Ég get svarið það að ég fékk Gleðibanka flassbakk þegar ég sá hann Eika minn á sviðinu, hvað er þetta að vera með uppbrettar ermar á öllum jökkum og frökkum upp fyrir olnboga.  Var líka svona 1986, og svei mér þá ef þetta er ekki soldið off.  En flutningurinn var annars mazzaflottur og lagið alveg ágætt.
Þá tók stigagjöfin við og höfum við jafnan átt við ramman reip að draga þar, en í þetta skiptið þá var þetta nú bara þannig að 70-80% af þessum lögum voru bara full frambærileg og áttu alveg skilið að komast áfram.  Það þýðir ekkert fyrir okkur "yfirallahinahafna" vesturlandabúa að vera væla yfir því að austantjaldslöndin fyrrverandi hafi komist áfram.  Það voru einfaldlega stórgóð lög þarna og má þar nefna blúsinn magnaða frá Ungverjalandi og poppuðu óperusöngkonuna frá Slóveníu ásamt kvennabandinu frá Serbíu (nei ég er ekki gay ).  Þetta er bara svona sorry við "vesturlandabúar" erum bara ekki skárri en þetta, nema að við eigum kannski færri farsíma per haus.
Hitt er svo allt annað mál að fyrirkomulagið á þessu er rotnara en Ingólfur Arnarsson, af hverju geta þessir sjónvarpsmógúlar ekki lengt keppnina bara um 1,5 klst og allt draslið í einni kippu.  Þetta verður aldrei sanngjarnt öðru vísi.
En well nóg af blaðri í bili l8er.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 16:28:01 / Lucifer

Rann aftur á hausinn...........

..........í compactinu altso, keypti nýjan MP3 spilara handa kellu, sá spilara í Tölvulistanum á góðu verði.  Var búinn að reyna gera við þann gamla og það gekk ekki því miður :(:(.  En þar sem að dúlluna mína vantaði spilara til að hafa í jogginu þá ákvað ég gefa henni einn svona í snemmbúna konudagsgjöf.  Thíhí, það besta við þetta er að hún hefur ekki hugmynd um þetta fyrr en að hún fer inn bloggið mitt að skoða :haha::haha:
En svona btw af því ég er svo heppinn að vinna hjá réttu fyrirtæki þá fékk ég 22% afslátt af þessu í Tölvulistanum.  Ekki spurning Tölvulistinn rokkar feitast.:P

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 21:17:52 / Lucifer

Við heppinn

Þegar að DVD myndin hoppaði ofan í körfuna okkar í Bónus um daginn þá vorum við næstum því búinn að kaupa Superman 1-4 á 799 kr stk.  Guði sé lof og dýrð í upphæðum þá hættum við við það og leigðum kvikindin á Amtsbókasafninu fyrir 800 krónur alla súpuna og ætluðum kannski bara að stelast til að brenna þær.  En eftir að við vorum búinn að eyða allri helginni í að horfa á þennan ófögnuð þá ákváðum við að vera ekki að eyða DVD diskum til að kópera þetta.  Kræst þvílíka ruslið, Superman II er eiginlega eina myndin sem að eitthvað smá er varið í, Superman I er lala en full langdregin.  Mér sem fannst þetta svo fínt í bíó fyrir aldarfjórðungi síðan ( omg ).  Allaveganna spöruðum 4x799 og eyddum 800 og allt of miklum tíma í þetta.  Þetta rusl kemur ekki aftur inn fyrir mínar dyr meðan að ég fæ einhverju ráðið og hananú ( sagði hænan og lagðist á bakið ) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 17:24:23 / Lucifer

Andsk......

....klikkaði á þessu, en hvað á það líka að þýða að vera selja "The Hunt for Red October" á 799 á DVD diski. Skamm skamm Bónus.  Alls ekki mín sök að hún datt ofan í körfuna og rataði alla leið heim í stofu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 16:28:21 / Lucifer

MARTRÖÐ....

......neyslufíkilsins kom inn á heimilið í dag:$, hmm hvað skyldi það nú vera þó ekki eitthvað sem byrjar á VISA og endar á götunni.  Jú flúnkunýtt plast með mazzahárri heimild og fullt af "stærstu" útsölum aldarinnar í gangi.  Ef að apparatið væri ekki svona ótrúlega fallegt ( gyllt og fínt ) og ég væri alls ekkert á leið til útlanda fyrir 12/08 þá myndi ég brjóta kvekendið.  En kannski þarf þess ekki þar sem maður er svo andsk stapíll :haha::haha:, þá reyni ég frekar að verða mér útum kassa með gleri til að koma því fyrir og hef svona "í neyð brjótið glerið", reyndar kostar það útgjöld jafnvel þó þau séu bara á tiger mælikvarða og þá er compactpælingin rokinn út í veður og vind.  Hvað er þá best að gera8|, gleyma kortinu ofan í skúffu?? eins og ég get verið gleyminn þá er þetta eitthvað sem að ég myndi aldrei gleyma, ekki þegar maður sér nýja auglýsingabæklinga um nýtt og skemmtilegt dót, dvd myndir ( sem við btw erum ekki búinn að kaupa neitt af á árinu ), og tölvuleikir.   Allt eitthvað sem maður getur í sjálfu sér verið án, en ég meina nýtt VISA kort, fullt af heimild hmm af hverju ekki að drífa sig út í BT og fylla annan rekka af DVD myndum.  Ú je.

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 13:24:11 / Lucifer

Útsölur útsölur útsölur

Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Þetta eru nú meiri skepnurnar að vera auglýsa stærstu útsölu frá upphafi þegar að við neyslufíklarnir erum í neyslusamþjöppun (compact), er ekki hægt að banna þetta????  Held samt að ég sé að verða svo stapíll að þetta verði ekkert mál :haha::P jé ræt.
Spurning um henda sjónvarpinu sínu og reyna að setja pappírstætara fyrir innan bréfalúguna til að spæna niður alla svona kapítalíska spillingarbæklinga, færi kannski einn og einn reikningur með en er það ekki bara allt í góðu lagi.
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT
Nei ég er ekki að fara í BT


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Aðrir tuðarar